Gestabók
27.8.2010 kl. 15:09
æfingar..
er að pæla að fara að prufa þetta. hvað þarf að mæta með meira en boxhanska??
steini
12.5.2010 kl. 20:45
sumarkennsla?
ég var að spá hvort það er kennt í sumar ?
Anna Katrín
22.3.2010 kl. 21:46
Barnapössun
Sæl Nanna. Það er bara að mæta og prufa. Þetta er fyrir alla 17 ára og eldri. Mjög dreifður hópur í aldri. Því miður býður aðstaðan okkar ekki upp á barnapössun. Kv. Ágústa Hera
Ágústa Hera
2.3.2010 kl. 13:23
fitneshópur 17 ára og eldra
sæl. langaði að forvitnast með þennan hóp, er einhver möguleiki að fá að prófa, er 26 ára. væri alveg til í að prófa. og langaði líka að spyrja eru þið með barnapössun :)
Nanna þorsteinsdóttir
8.1.2010 kl. 11:23
Sæll Danni
Fitnesshóparnir á stundatöflunni eru fyrir 17 ára og eldri.
HFH
2.1.2010 kl. 6:29
Eldri flokkar?
Sælir... eruð þið ekki með æfingar fyrir 18 ára og eldri?
Danni
10.11.2009 kl. 0:10
?
hæhæ:) eru þið með einkatíma ?:)
andrea
9.9.2009 kl. 11:10
Bræðradagur
Sæll Halldór og afsakaðu hvað ég svara seint. Það er ekki leyfilegt að fara að fara í hringinn fyrr en eftir 6 mánaða þjálfun hjá skráðu félagi innan ÍSÍ. Því miður.
Ágústa Hera Birgisdóttir
3.9.2009 kl. 11:43
Bræðradagur
Sæl Ágústa
Ég er að reyna búa til skemmtilegan dag í Reykjavík fyrir mig og bróður minn um helgina. Hann er orðinn 18 ára og ég er 22 ára. En núna er litli bróðir orðinn stærri en ég og langar okkur að prufa eina lotu í hringnum. Má það og hvað myndi það kosta?
Halldór Heiðar Hallsson
1.9.2009 kl. 12:35
Endilega komið
Sæl Helga. Það er alveg í fínu lagi að koma og horfa. Mæli einnig með að þið komið í frían prufutíma og bara prófið þetta. Alveg hrikalega gaman og frábær árangur. Bestu kveðjur. Ágústa Hera Formaður HFH
Ágústa Hera Birgisdóttir
31.8.2009 kl. 16:46
?
má koma og horfa á eina æfingu, er að pæla að fara að æfa og 3 vinkonur mínar líka ?
helga
11.5.2009 kl. 2:13
Fitnessbox
Er þetta bara þrisvar í viku og maður kaupir x marga mánuði og mætir á þeim tíma eða eru sérstök námskeið? Ef það eru námskeið, hvenær byrja þá næstu námskeið?
Heba
24.1.2009 kl. 18:22
Sæl Lilja
Það þarf ekki að skrá sig áður en maður mætir í fyrsta skipti (prufutíma). Bara mæta tímanlega og láta þjálfarann vita :)
Jóhanna -hfh.is
22.1.2009 kl. 22:44
Fitnessbox
Getur maður bara mætt á æfingar eða þarf maður að skrá sig?
Lilja
21.1.2009 kl. 21:13
Sæl Heiða
er í lagi að koma á laugardögum í einn prufutíma
Binni
17.1.2009 kl. 18:31
Sæll Elvar, fitnessbox er fyrir 17 ára og eldri.
Jóhanna -hfh.is
15.1.2009 kl. 16:38
aldurs takamark
er aldurs takamark í fitness box ?
elvar
12.12.2008 kl. 23:45
Flott heimasíða
Haukur Sigurðsson
10.12.2008 kl. 16:43
Póstlisti
Nú er hægt að skrá sig á póstlista hér á síðunni. Allar tilkynningar verðar sendar út eftir þessum lista. Endileag skráið ykkur. Bestu kveðjur.
Ágústa Hera
Ágústa Hera Birgisdóttir
8.12.2008 kl. 17:18
Anton segir góðar æfingjar
Merkjuð æfing 8 des. Maður heltuer áfram BOXI
Anton Richter
7.12.2008 kl. 13:41
Anton segir áfram Box
Flott síða. BOX er mín uppáhalts íþrótt og skemmtilegar æfing hjá ingri floknum og erfiðar æfingar
Anton Richter
21.11.2008 kl. 10:08
Sæl og blessuð öll.
Mig langar að biðja ykkur að vera dugleg að skrifa hér inn á nýju síðuna hjá HFH. Koma með hugmyndir og fl, hvernig við getum gert gott félag enn betra. Hlökkum til að heyra í ykkur. Bestur kveðjur. Ágústa Hera
Ágústa Hera Birgisdóttir
15.10.2008 kl. 22:57
Alma hér
vá hvað mér hlakkar til að byrja aftur i boxi
Alma
13.10.2008 kl. 15:25
Inga Helga
flott síða það verður gaman að fylgjast með!!!
10.10.2008 kl. 15:14
Til hamingju með nýju síðuna ykkar:)
Villi HFÆ
6.10.2008 kl. 15:33
Flott síða hjá ykkur... Svo er bara að standa sig í að uppfæra :)
Gunnar Þór