Alcan styður barna og unglingastarf Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar.

Tenglar

29.01.2009 19:26

Lífshlaupið 4.-24. febrúar

Hvetjum alla til að kynna sér Lífshlaupið, skráning til hliðar hér á síðunni.

 

Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Lýðheilsustöð gaf út í fyrsta skipti árið 2008 ítarlegar ráðleggingar um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag (sjá nánar hér til vinstri undir hnappnum Hreyfiráðleggingar). Inn á vef Lífshlaupsins er hægt að velja um þrjár leiðir.

·  Ef þú ert 16 ára og eldri getur þú tekið þátt í vinnustaðakeppni.

·  Ef þú ert 15 ára og yngri getur þú tekið þátt í hvatningarverkefni fyrir grunnskóla.

·  Allir geta tekið þátt í einstaklingskeppni þar sem þátttakendur geta skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.

Þú getur fylgst með fjölda þátttakenda, fjölda liða og með þeim árangri sem þátttakendur ná í hverju sveitarfélagi fyrir sig með því að smella á Staðan hér vinstra megin.

Skrá má alla hreyfingu niður en hún þarf að ná minnst 30 mínútum samtals hjá fullorðnum og minnst 60 mínútur samtals hjá börnum og unglingum til að fá dag skráðan. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn. Þegar ákveðnum fjölda daga er náð í einstaklingskeppninni hlýtur viðkomandi viðurkenningu brons (42 dagar), silfur (84 dagar) eða gullmerki (252 dagar). Í hvatningarleiknum eru grunnskólanemendur hvattir til þess að ná að hreyfa sig í 11 daga í samræmi við ráðleggingar um hreyfingu. Í vinnustaðakeppninni er hugmyndafræðin þ.e. flokkaskipting og útreikningar þeir sömu og eru í fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna. Þar sem fjöldi þátttakenda er deilt með heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum, nema nú er keppt um fjölda daga og mínútna.

Samstarfsaðilar ÍSÍ eru heilbrigðisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, Lýðheilsustöð, Skýrr, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Þín heilsa - Þín skemmtun

 

Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 120
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 134637
Samtals gestir: 38616
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 07:23:07

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar | Dalshrauni 10 | Sími: 841-1165 | Netfang: hfh@hfh.is