Alcan styður barna og unglingastarf Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar.

Tenglar

Færslur: 2009 Nóvember

12.11.2009 01:03

Keppnisferð til Danmerkur

Á síðasta ári var farið til Danmerkur með sjö keppendur á árlegt galakvöld Team Bredahl í Holbæk. Það voru þau Adam Freyr Daðason, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Baldur Fannar Arnarson, Daníel Hauksson, Gunnar Kolbeinn Kristinsson, Gunnar Þór Þórsson og Kristján Orri Arnarsson sem sóttu út fyrir landsteinana ásamt Bjarka Bragasyni, Daða Ástþórssyni og Fabio Quaradeghini þjálfurum.

Þeir Baldur og Adam unnu flotta sigra á andstæðingum sínum og það sama má segja um Daníel þótt dómaranir hafi ekki verið því sammála. Ásdís fór fjórar lotur í fyrsta skipti, mætti reyndari og stærri andstæðing og stóð sig með ágætum, en varð að sætta sig við tap á stigum. Kristján Orri landaði þriðja íslenska sigrinum og Gunnar Kolli gulltryggði kvöldið fyrir Ísland með yfirburðasigri á sínum andstæðing. Mótherji Gunnars Þórs Þórssonar náði ekki vigt og tapaði því sjálfkrafa án þess að keppt væri (hann var næstum því 9 kg þyngri en Gunni).

Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru stjörnumerktir):

Baldur Fannar Arnarson* vs Christian Doest (BK Tårnet 74)
Adam Freyr Daðason* vs Fahim Safi (Nykøbing BK)
Daníel Hauksson vs Adnan Yassin* (Karlebo BK)
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir vs Nína Jørgensen* (Lyngby BK)
Kristján Orri Arnarsson* vs Mark Olsen (Team Bredahl)
Gunnar Kolbeinn Kristinsson* vs Brian Johansen (Team Bredahl)
Gunnar Þór Þórsson* vs Landry Kore (Team Bredahl) 

03.11.2009 14:27

Minnum á frían prufutíma...

Stundatafla HFH

..þú þarft ekki að skrá þig, bara mæta í tíma samkvæmt stundatöflu og láta þjálfarann vita að þú sért að koma í prufutíma!

Tími 

Mánud. 

Þriðjud. 

Miðvikud. 

Fimmtud. 

Föstud.

Laugard.

Sunnud.      

6:00-
7:00

 Fitness 1

             

Fitness 1

 

Fitness 1

 

 

10:00-
11:30
 

 

 

 

 

 

Fitness 5

 

16:00-
17:00

 Börn
8-12 ára

 

 Börn
8-12 ára

 

 Börn
8-12 ára

 

 

17:00-
18:00

 Unglingar
    13-16 ára    

Keppnishópur
17:00 - 18:30 

 Unglingar
13-16 ára

 Keppnishópur
17:00-18:30

 Unglingar
13-16 ára

 

 

18:30-
19:30

 Keppnishópur
18:00-19:00

 Fitness 3

 Keppnishópur
18:00-19:00 

 Fitness 3

 Keppnishópur
18:30-20:00

 

 

19:30-
20:30 

  Fitness 2
19:00-20:00

 Fitness 4

  Fitness 2
19:00-20:00

 Fitness 4


 

 

20:00-

21:00

 Meira box
Lokaður tími


Meira box
Lokaður tími



 


 

Allir tímarnir eiga það sameiginlegt að þú lærir undirstöður í ólympískum hnefaleikaæfingum. Það er mikil brennsla og styrking, þú færð aukið úthald og kemst í toppform á stuttum tíma.

8-12 ára: Skemmtileg hreyfing fyrir þennan aldurshóp.

13-16 ára: Mjög góð hreyfing og jafnvel undirbúningur fyrir keppnishópinn.

Fitness: 17 ára og eldri. Mjög mikil brennsla. Fyrir þá sem vilja auka þol, losna við kíló og styrkja sig á skemmtilegan hátt. Fitness 1-5 segir til um hópaskiptingu, ekki erfiðleika.

Keppnishópur: Æfir öll undirstöðuatriði ólympíska hnefaleika og taka þátt í mótum.

Meira box: Þeir sem hafa áhuga tala við Bjarka þjálfara.  

    Flettingar í dag: 28
    Gestir í dag: 14
    Flettingar í gær: 120
    Gestir í gær: 29
    Samtals flettingar: 134637
    Samtals gestir: 38616
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 07:02:05

    Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar | Dalshrauni 10 | Sími: 841-1165 | Netfang: hfh@hfh.is